Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
20.2.05

Í gær rann upp minn afmælisdagur, svo ákaflega skýr og fagur. 21 aldursárið færðist yfir mig og þá er þetta farið að verða alvarlegt. Ég er orðinn löglegur áfengiskaupandi í flestum ríkjum Bandaríkjanna og það fer að styttast í að ég megi gerast forseti Íslands. En afmælisdagurinn var frábær. Mér bárust ótal kveðjur með ýmsum boðleiðum hvaðanæva að, auk þess sem fjölmargir samglöddust mér í kökuboði um daginn og gleðskap um kvöldið. 1000 x takk fyrir mig og takk elsku mamma fyrir að halda tvær afmælisveislur fyrir mig!
...sagði Hafdis Sunna klukkan 19:46