Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
23.1.05

Nýja árið fer prýðilega af stað, a.m.k líður janúar nógu ógeðslega hratt. Ýmislegt hefur á daga mína drifið, en þó er þetta rólegasti janúarmánuðurinn síðan ég var lítil og hafði fáum skyldum að gegna, líkt og núna. Ég reyni að njóta þessa ljúfa lífs, því svona afslappaður janúar kemur sennilega ekki aftur fyrr en hárið verður orðið hvítt. Þetta helsta í stuttu máli: Ég er ekki komin með fasta vinnu, en er að fara að leysa af í apótekinu í mánuð, við héldum annan í áramótum, það eru búin að vera meiriháttar matarboð hérna síðustu þrjár helgar, fór í frábærar veislur til nýstúdentanna Óttars og Gullu, frjálshyggjaðist með Gylfa og co, skemmti mér með Eddu, bakaði kökur, brallaði ýmislegt með Kristínu og Kalla, heitapottaðist með Hávarði, hjálpaði Öggu og Sollu Mæju að snjóbrettast, snjóbrettaðist líka og svaf alltof mikið út.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 21:47