Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
30.1.05

Helgin var góð, mamma skrapp suður og kom mér því fyrir hjá Eyju systur og fjölskyldu svo ég myndi ekki svelta og deyja. Á laugardaginn fór ég í partý til Albertínu, kíkti svo til Nonna og brunaði síðan yfir á Flateyri í partý til Tinnu og á Vagninn. Jánei, það var ekki alveg svo gott, á leiðinni yfir skall á vont veður sem varð að brjáluðu veðri í litla hvíta framhjóladrifna bílnum hennar Heiðu. Við snérum við og fórum á Sjallann, ferleg spæling. En á Sjallanum var fínt stuð, eða er svosum ekki allt stuð þegar Bakkus er með í gerðum? Á meðfylgjandi mynd sjást Jóhann (beitningarmaður), Steini (aflakló) og Smári (sem lék sjómann í auglýsingu fyrir Símann). Þetta er nýju vinir mínir, því ég er að fara að beita.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 21:44