Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
14.1.05

Ég ætlaði að fríka meira úti, baða mig í sól og sælu og halda áfram með spænskuna. En þar sem peningarnir vaxa ekki á trjánum ákvað ég að hlusta á rödd skynseminnar, þótt erfitt væri, og ætla því að vera á Ísafirði þangað til í haust - safna peningum fyrir háskólanámi, leita að skólum og brasa í umsóknum, snjóbrettast þangað til snjórinn hverfur, borða mömmumat og sitthvað fleira. Þessa stundina er ég að leita mér að vinnu, finnst það alveg óþolandi pínlegt. Var nefnilega bara í jólaafleysingum í Apótekinu og á Bæjarskrifstofunni í desember.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 14:12