Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
29.11.04

Því miður get ég ekki póstað neinum fleiri myndum frá Gautaborg og alls engum frá Jersey þar sem ég ákvað að létta á farangrinum áður en ég færi til Kúbu. Ég sendi kassa heim sem innihélt allar myndirnar sem ég tók í Hollandi, Svíþjóð og Jersey, gallabuxurnar mínar, jakkann minn, kápuna mína ofl. ofl. Leiðinlegt nokk því pakkinn hefur ekki enn skilað sér. Stal meðfylgjandi mynd á síðunni hennar Möttu. En hun er tekin á Buddhabar eitt gleðikvöld í Jersey.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 20:27