Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
7.10.04

Við Kristinn leigðum okkur hjól og hjóluðum í garð með veitingastað, strönd, leiktækjum, bátum ofl. Einnig hjóluðum við í bænum og skoðuðum ýmsa merkilega hluti. Í Hollandi eru sérstakar hjólabrautir með skiptum reinum (sumstaðar) og sér umferðarljós fyrir hjólreiðamenn. Enginn er með hjálm og allir á frekar púkó hjólum, þannig að við Kristinn skárum okkur ekkert úr og hjólunin reyndist auðveld og skemmtileg. Bakvið Kristinn eru perurunnar, en mikil og allskonar rækt er í Hollandi. T.d. rækta bændurnir hass og nota spes aðferðir og áburð svo hollenska hassið er mun sterkara en annað hass.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 08:34