Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
6.10.04

Annað af tveimur bíóunum í Maastricht. Við Kristinn fórum á "Terminal" í þessu bíói - mjög viðeigandi þar sem myndin er byggð á sögu úr raunveruleikanum, manni sem festist á Charles de Gaulle flugvellinum í París og býr þar núna. En ég flýg einmitt frá þeim flugvelli þegar ég fer til Kúbu. Síðan fórum við í "Sneak preview" í hinu bíóinu, en þá er miðinn ódýr og þú lendir á einhverri óútkominni mynd - voða spennó. Hvers kyns bjór er seldur í Niðurlandabíóunum og það er hlé. 
...sagði Hafdis Sunna klukkan 12:57