Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
6.9.04

Síðasta vinnudag Unnar plataði ég hana með mér niður í kjallara í stjórnsýsluhúsinu. En hún var svo góð að hjálpa mér að koma nokkrum möppukössum fyrir á sinn stað. Þar eru svona stálrekkar sem maður ýtir frá og þegar önnurhvor okkar var að bogra við að troða möppukössum inn í hillurnar þá runnu stálrekkarnir alltaf saman svo viðkomandi nærri kramdist. Þegar við opnuðum e-n stálrekka vorum við semsagt skíthræddar um að finna dauðan bókhaldara. Nenei, segi svona, en þetta var mjög kómískur vinnudagur.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 19:56