Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
14.9.04

Á morgun 14.sept. held ég í höfuðborgina og þar með hefst ferðalagið mikla. Fimmtudaginn 16.sept. flýg ég til London þar sem ég hangi í um 12 tíma á Stansted (svona langur Kringludagur, heh). Föstudaginn 17.sept. flýg ég til Eindhoven í Hollandi og gisti hjá Kristni í Belgíu þar til miðvikudaginn 22.sept. þegar ég flýg frá Brussel til Stokkhólms. Ég verð hjá Vicky í Gautaborg þar til 27.sept. en þá flýg ég til London og þaðan til Jersey til Eddu þar sem ég verð þar til 7.okt. Þá flýg ég til London og hitti Hrönn og við förum saman til Kúbu 8.okt. Þar verð ég til 8.nóv., en þá flýg ég til Guatemala til Aðalbjargar og verð hjá fjölskyldunni hennar þar til 25.nóv. Að lokum lendi ég í Keflavík 26.nóv.
Úff, ég veit ekkert hvernig þetta á eftir að lukkast, ...frábært fólk, frábærir staðir, líklegast frábær tími. En ég veit allavega að ég er ekki meiri víkingur en svo að ég á eftir að sakna allra heima alveg fáránlega mikið. Ég reyni að setja eitthvað inn á síðuna á meðan ég er í Evrópu, en ætli það verði ekki eitthvað lítið þegar ég verð komin í land Castros.
Hafið það gott á Íslandi - njótið ferska loftsins og hreina vatnsins ; )
...sagði Hafdis Sunna klukkan 01:09