Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
4.9.04

Í gærkvöldi stóð nemendafélagið fyrir fallegri minningarathöfn um hana Sif okkar sem öllum þykir svo vænt um. Friðarkerti voru lögð meðfram Skutulsfjarðarbrautinni, Ársæll las nokkrar minningargreinar af bloggari.is/sif, Kristinn Gauti lék á gítar og Skúli prestur talaði og fór með bæn.

...sagði Hafdis Sunna klukkan 16:01