Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
1.9.04

En síðan fór sólin að skína og eftir stöðugar net- og bæklingaskoðanir, fjölmörg símtöl og ráðagerðir tókst mér loksins að ákveða mig. Ég gafst upp á að reyna frekar við Bretland/enskuna og því er stefnan tekin á málaskóla á Kúbu, nánar tiltekið Havana. Þar verð ég frá 11.október ásamt Hrönn vinkonu minni að læra spænsku. Kúba varð fyrir valinu af því að þar er fallegt og fólkið yndislegt - fannst ég verða að fara þangað áður en Castro myndi falla frá og vestræna menningin ryðja sér yfir.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 18:36