Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
1.9.04

Eins og margir vita ætlaði ég sem au-pair til London. Planið var að dvelja í Richmond, hverfinu sem Mick Jagger býr í ;) að passa 12 ára stelpu, auk þess að fara í enskuskóla. En þegar leið að flugbókun snérist mér hugur því það virtist vera eitthvað gruggugt við þetta og svo mörgum spurningum ósvarað. Því ákvað ég að fara til Bretlands í enskunám, á 4 vikna barþjónanámskeið og í kjölfarið að vinna á bar. En það gekk ekki upp. Úff, mér féllust hendur og ég var í lausu lofti í marga marga daga, ferlega spæld yfir því að ekkert af plönunum mínum skyldi ganga upp. 
...sagði Hafdis Sunna klukkan 18:29