Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
27.8.04

Í MÍ og þá sérstaklega sem formaður NMÍ kynntist ég fullt af yndislegu fólki. Þar á meðal yndislegu Sif Magnúsdóttur sem lést þann 25. ágúst, langt fyrir aldur fram. Það geislaði af þessari ljóshærðu og fallegu stelpu sem heillaði viðstadda alltaf með sterkum persónuleika sínum, hógværð og hlýju brosi.
Á stundum sem þessum finnst okkur lífið ömurlegt og algjörlega tilgangslaust. Enginn fær skilið af hverju stúlka í blóma lífsins er tekin svo snögglega úr örmum vina og ættingja.
Minningin um Sif lifir í hjörtum okkar allra um ókomna tíð. Ég votta fjölskyldu Sifjar, vinum og kunningjum mína innilegustu samúð. Megi Guð veita þeim styrk á þessum erfiðu tímum.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 01:05