Seiseihóhójá
"Danslagið seiðir
og götuna greiðir"
19.8.04

Je, á morgun keyri ég suður á bóginn. Fyrst gistum við eina nótt í Húsafelli hjá Gísla bróður og fjölsk. - mætum í grill hjá þeim annaðkvöld og fáum að skella okkur í heitapottinn. Síðan liggur leiðin til Reykjavíkur þar sem við stórfjölskyldan verðum í íbúð á Rauðarárstígnum í viku. Við förum á Fame á föstudagskvöldið, vegna þess að ég, lukkugrísinn/skíturinn vann tvo miða. Síðan er ætlunin að taka þátt í menningarnótt með því að mæta á einhverja snjalla viðburði. Auk þessa er á dagskránni: tannréttingarlæknir, fartölvukaup ofl.
...sagði Hafdis Sunna klukkan 00:07